Vekjaraklukka frá Bellman & Symfon

Vekjaraklukkan frá Bellman & Symfon vekur með ljósi, hljóði eða titringi svo að maður sofi ekki yfir sig.

Helstu kostir klukkunnar

  • Hávær vekjaraklukka sem hækkar hljóðið smám saman í allt að 100 dB.
  • Blikkljós frá fjórum skærum LED-perum.
  • Öflugur hristari sem settur er undir koddann eða dýnuna.
  • Náttlampi með bláu ljósi sem vísar veginn að rúminu.
  • Gengur fyrir rafhlöðu ef rafmagnið fer.
  • Einföld í notkun.
  • Hægt er að tengja við öryggistæki, s.s. reykskynjara (athugið að svo hægt séi að tengja vekjaraklukkuna við öryggistækin þurfa tækin að vera frá Bellman. Ef þú hefur áhuga á að kaupa reykskynjarann, dyrabjölluna eða önnur öryggistæki frá Bellman hafðu samband við okkur í síma 534-9600, opið alla virka daga frá 9-16:30).